Presley syngur fyrir Snæbjörn

Snæbjörn kæri,
Snæi “sweet”,
Þú ert orðinn stór.
Grátt í vöngum, lítið “beat”
og ekkert voða mjór

Snæbjörn kæri,
Ein er sú
Sigga þér við hlið
Átti með þér börn og bú
Og eldaði oft svið.

Snæbjörn kæri,
Ólafsson
Brátt þú getur hætt
Að stunda vinnu lon og don
Og barnabarna gætt

Snæbjörn kæri,
Snæi „dear“
Bíddu bara um sinn
Því að núna styttast fer
Í ellilífeyrinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Veiðifélagið

Góður söngur og frábært afmæli takk fyrir mig kveðja Sigrún

Veiðifélagið, 24.2.2008 kl. 22:55

2 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Love me tender!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 26.2.2008 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband