Bátsnafnið

Félagi Snæbjörn spurði að því í apríl hvort búið væri að gefa bát sægreifans nafn. Svo var ekki þá en fyrir nokkru fékk ég upplýsingar um hvert nafnið væri. Margar tillögur höfðu borist sægreifanum, m.a. Böggý, Ingó, Ingibjörg, Bjögga, Inga, Ingó uppáhald og eitthvað fleira. Sægreifinn hlustaði ekki á þessar tillögur heldur valdi bátnum bæði nafn og númer og heitir hann:

Jenný EA 451


Uppskrift að villibráð

Jæja kæru félagar í Veiðifélaginu,

er ekki komin tími til að blogga smá. Þar sem hvorki formaður, varaformaður né aðrir gildir limir eða makar þeirra hafa séð ástæðu til að færa hugsanir sínar til bókar hér. Mér dettur hins vegar í hug að setja hér inn uppskrift sem ég fann á vefsíðu Bjarnareyjar af "Villikrydduðum lundabringum". Þetta hljómar ákaflega vel og ég er sannfærð um að þeir sem hugsanlega ná sér í einhvern svartfugl geti matreitt hann eftir þessari uppskrift.

Villikryddaðar lundabringur

6 lundabringur, úrbeinaðar. Villibráðarkrydd frá Pottagöldrum. 1 rauðlaukur, gróft skorinn. 1 box sveppir, skornir í báta. 1 bolli maltöl. 2 1/2 dl rjómi. 1-2 tsk. bláberjasulta. 1 askja bláber. 1-2 tsk, villikraftur frá Oscar. Bökunarkartöflur, skornar í báta.

Byrjið á því að láta kartöflubátana í ofnskúffu og hellið olíu yfir þá. Kryddið með hvítlauksdufti, tímíani og salti eftir smekk. Bakið í ofni í 45 mín. við 180 gráður.

Kryddið lundabringurnar með villibráðarkryddinu. Skerið laukinn gróft og sveppina í báta. Snöggsteikið lundabringurnar í olíu á pönnu í u.þ.b. 2 mín. á hvorri hlið ásamt rauðlauknum og sveppunum. Takið lundann af pönnunni. Hellið maltöli á pönnuna og látið sjóða í smá stund. Hellið því næst rjómanum saman við og svo bláberjasultunni og bláberjunum. Sjóðið saman í stutta stund. Bragðbætið sósuna með villibráðarkrafti eftir smekk. Látið síðan lundabringurnar út í sósuna áður en allt er borið fram.

 


Báturinn kominn á flot

Ágætu Veiðifélagsfélagar, það er með miklu stolti og gleði sem ég tilkynni ykkur að gildur limur, Siggi Hinna, hefur sett fleytuna á flot.

 

 

 

 


Villtar meyjar vilja ei ...

Veiðifélagið hélt árshátíð sína á Suðurlandi síðasta haust. Árshátíðin gekk ákaflega vel en þar varð til ansi öflugur kveðskapur sem tengdist m.a. Syðra-Langholti. Ein vísan var svona: 

Villtar meyjar vilja ei
verðmætunum sóa.
Heldur vilja þessi grey
liggja meðal flóa.

 

 


mbl.is Sigurður Ingi í fyrsta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venus bauð Mánanum uppí dans

Skýring á því undurfagra sjónarspili sem Veiðifélagið varð vitni að föstudagskvöldið 27. febrúar sl. http://www.stjornuskodun.is/component/content/article/42-frettir/415-tunglie-og-venus-stiga-dans


Búið að fjárfesta í bát

Í bát er hann búinn að fjárfesta í
blessaður drengurinn okkar.
Nú skulum við sigla á veiðarnar því
sjóstakkurinn gamli lokkar.

Já Siggi er sómamaður
sjómaður heill og klár.
Hann þolir ekkert þvaður
og þarf ekki seglu né ár.

Nú fögnum við félagar allir
og förum að hlakka til.
Því skýjanna himna hallir
höndlum við hér um bil.

Á Eyrinni akurs við munum
afla sem aldreigi fyrr.
Með gellum og hraustum gumum
er glatað að sitja kyrr.

Nú held að ég hætti að bulla
og hamast við vísnasmíð.
Ég veit að snart mun ég sulla
í sjó sem ég ann og líð.

Hafdis_EA100A

 


ég meika ekki milljón flær á beit

Veiðifélagið hyggur á ferðalag um næstu helgi. Af því tilefni finnst framkvæmdastjóranum við hæfi að birta texta Megasar við lagið 10 milljón flóabita nótt.

þetta er minnst 10 milljón flóabita nótt
hún líður nógu hægt og hljótt
en hart er að mér sótt
þetta er minnst 10

ég er orðinn eins og gatasigti
ekki frá því í mér hrikti
engin furða þó ég lykti
ég er orðinn eins og gata

bókstaflega eins og lúði á litinn
af flóm óblíðum bitinn
allur bæði og ýkt útskitinn
beisikallí eins og lúði

ég fíla ekki flóahjörð á beit
þær eru sætar uppí sveit
en sæki þar í minn reit
ég fíla ekki flóa

ég meika ekki miljón flær í beit
ef ég væri ekki svona streit
væri stund þessi ærið heit
ég meika ekki miljón flær

ég er frægur starraflóabitanjótur
þú sérð það glámshornaugnagjótur
að uppgenginn er minn fótur
því ég er frægur

jeppi á fjalli ég er sjálfur hann
að ljósið fagra fann
það til frægðar ég mér vann
jeppi á fjalli je

sem einn lúser á fótum lengi vel ég gekk um
laus frá skaðvænlegum skekkjum
upp fjöll ég skýst á megadekkjum
sem einn lúser

fráleitt meir aulast ég á ekkjum
úr fótgönguliðahlekkjum
er ég frjáls á maxidekkjum
fráleitt meir

ég þarf að losa mig við tattú fá mér annað
það sem bannað er jú bannað
en ekki brot nema það sé sannað
ég þarf að losa mig við tattú

það er mómentið sjálft frosið enginn filler
því fyrirtækið er þriller
enda funda ég með killer
það er mómentið sjálft frosið

forðum út ég gekk með gramm í vasa
andesfjallalofti grænna grasa
fylltust gímöld minna nasa
forðum út ég gekk

nú er ég á nesi þessu klín
vitiði klór er ekkert grín
en því geng ég um og skín
nú er ég á nesi

hér var það sem siggi breiðfjörð bjó
niðrí víkurkvos sér kró
en kaus að hafa þó
hér var það sem hann siggi bjó

sagður var hann átt hafa tvær í einu
líf er heillegra í hreinu
og því heilagt í ekki neinu
sagður átt hafa einar tvær

eiðis á þeim geigvænlega granda
engin skil minna eigin handa
greini þó á höfði reyni að standa
eiðis á mjög svo

það verða tíuþúsundplatnajól
enginn krókur engin ól
ekkert klifur upp á stól
það verða tíuþúsund

ég farga mér segi ég fari hún ekki í gull
þetta er sull útsvínaðbull
eins og sæmir engin ull
ég farga mér

lifandi heilt komst ég  gegnum kóla
en það dugir ekki að stóla
á þá stráka sem misnota njóla
lifandi

líkamslífræktaður upp úr bók
lífs má enginn komast úr kók-krassi
utan digru ankerist lók-hlassi
líkamslífræktaður hrókur í smók

minnst tíumilljónflóabitanótt
og sár getur verið ljótt
þó dýr sé lágvaxið og mjótt
minnst tíumiljónbitanótt


Gjaldkerinn tekur pungapróf

Upplýst hefur verið við framkvæmdastjóra að gjaldkeri félagsins sitji nú með sveittan skallann (í bókstaflegri merkingu) við að læra undir pungapróf sem tekið verður í fjarnámi frá Hornafirði. Í framhaldinu hefur gjaldkerinn frætt framkvæmdastjórann um það að fyrir dyrum stendur að festa kaup á trillu sem hentar manni með pungapróf (þ.e. undir 12 metrum). Ef einhver hefur vitneskju um slíkan grip má gjarnan færa inn tilkynningu þar um hér á athugasemdasíðuna.

Það sem framkvæmdastjórinn er hins vegar steinhissa á er að gjaldkerinn sendi formanninn til þess að skoða mögulega trillu sem liggur við festar í Hafnarfjarðarhöfn. Það er kunnara en frá þurfi að segja að formaðurinn hefur aldrei migið í saltan sjó og ber lítið skynbragð á hvað er góð trilla og hvað ekki. Hann hefur hins vegar gott auga fyrir fögrum gripum, sem sést best á tiltölulega nýlegri eiginkonu formannsins (systur gjaldkera og framkvæmdastjóra).

Það var hins vegar gjaldkeranum til happs að í fylgd með formanni voru fyrrverandi formaður og fyrrverandi gjaldkeri svo hann var í öruggum höndum og var til allrar guðs lukku gefið rautt ljós á trilluna.


Formaðurinn boðar til samverustunda

Samverustund Veiðifélagsins verður að Ytri Vík við bæinn Kálfskinn í Árskógstrandarhreppi helgina 27. febrúar til 1. mars 2009. Það var Sigurður Hinriksson, gjaldkeri, sem festi félaginu húsið á þessum tíma að beiðni formannsins, Þóris Gíslasonar. Í ferðinni verður haldið uppá stórafmæli eins gilds lims og eru velunnarar Veiðifélagsins beðnir um að giska á hver á afmæli og hversu gamall sá verður í ferðinni. Nándarverðlaun eru veitt.

Kálfskinn er bær á Árskógsströnd, þar sem er rekin fjölþætt ferðaþjónusta (2003).  Sögulegur ljómi staðarins byggist á búsetu Hræreks konungs af Heiðmörk í Noregi, sem Ólafur helgi lét blinda og senda til Íslands.  Honum þótti líf sit batna við brotthvarf sitt frá heimahögunum og lítils samneytis við höfðingja, því hann var meira metinn á Kálfskinni en aðrir menn.  Dauður var hann heygður í Hrærekshóli við túnið á bænum, eini konungurinn, sem hlotið hefur leg á Íslandi.  Núverandi konungur á staðnum, Sveinn Jónsson (2003), hefur um árabil verið nokkrum spönnum á undan sínum samtímamönnum í framtíðaráfornum um ferðaþjónustu, sem hafa samt fæstar hlotið brautargengi nema hann hafi rutt þeim braut með niðjum sínum og verður vafalaust minnst sem einhvers hugmyndaríkasta frumkvöðuls á því sviði.

http://www.nat.is/travelguide/ahugav_st_kalfskinn.htm

kv. formaðurinn.


Jólakort til þín!

Jolakort_Veidifelag

Ljós í myrkri

Veiðifélaginu barst eftirfarandi kveðja frá Vigni bloggvini sínum og þakkar kærlega fyrir það. Boðskapurinn er sjálfsagður nú á þessum síðustu og verstu og er Veiðifélaginu það bæði ljúft og skylt að bera skilaboðin áfram.

Ljós í myrkri
Á þessum skammdegisdögum er nauðsyn að birta og ylur kærleiks og vinskapar streymi um nágrenni okkar. Við þyrftum nú strax að hvetja alla til að byrja á því sem kallað er -Ljós í myrkri-. Í fyrstu væri einungis lifandi kertaljós í einum glugga, falleg kveðja til nágrannanns.

Þetta er í raun byrjun á ljósaskreytingu aðventunnar en væntanlega meir með hvítum ljósum sem síður eru tengd sjálfum jólunum. Stígandi væri í þessu sem byrjaði á kertaljósi í glugga og endar í fallegum velupplýstum gluggum í byrjun aðventu.

Kertaljós er staðalbúnaður á mínu heimilli en ekki veitir af að kvetja menn og reyndar öll börn guðs til kærleiks og væntumþykju þó ekki sé til annars en að líða vel í eigin hjarta.

Látið þetta ganga!


Frést hefur...

að formaður Veiðifélagsins ásamt fyrrverandi gjaldkera og varaformanni hafi verið að plokka gæsir í Kópavoginum í dag. Þeir sem áttu hlut að máli eru vinsamlega beðnir um að upplýsa framkvæmdastjórann um gjörninginn.

Bed bugs ... til fróðleiks

Upplýsingar um svokallaðar rúmpöddur (bed bugs).

Myndir af kvikindunum er líka að finna á slóðinni hér að ofan (veljið myndir)

Til enn frekari fróðleiks þá hefur heilbrigðiseftirlitið tekið málið í sínar hendur.

Framkvæmdastjórinn og flóafriðurinn.

 


Flóafriður

FlóafriðurVillta meyjan Bryndís Hinriksdóttir fékk ekki flóafrið á fyrri gististað Veiðifélagsins þar sem hún deildi rúmi með hundruðum flóa og lúsa. Varð það því að ráði að gildir limir Veiðifélagsins fluttu dvalarstað sinn austur á Hellishóla en á leið sinni ók Bryndís þó lúshægt í gegnum Flóahrepp enda þurfti hún að kveðja margan félagann á leiðinni.

Að gefnu tilefni skal á það bent að þeir sem eru með Bryndísi á myndinni hafa ekkert með flóafriðinn að gera.

Af þessu tilefni kastaði framkvæmdastjórinn fram fyrriparti sem hljómar svo:

Villtar meyjar vilja ei
verðmætunum sóa

og Þorvaldur Böðvarsson gildur limur Veiðifélagsins botnaði:

Heldur vilja þessi grey
liggja meðal flóa.

 


Þórir Gíslason kjörinn formaður

Þórir nýr formaðurÞórir Gíslason knattspyrnumaður var kjörinn formaður Veiðifélagsins á ársfundi hans sem haldinn var í gær, laugardag. Fundurinn fór fram í sumarhúsi við Hellishóla og þótti takast einstaklega vel. Þórir hafði sig ekki mikið í frammi á fundinum og var honum launað með því að gildir limir í félaginu kusu hann til formanns.

Á fundinum var samþykkt lag félagsins en það er "Varaformaður skal taka við starfi formanns þegar kjörtímabíli hans lýkur!" Eru gildir limir almennt ákaflega ánægðir með lagið og hafa þegar samþykkt að ekki verið samþykkt annað lag svo ekki verið til lög félagsins.

Að auki samþykktu limirnir viðurlög við ósamdar reglur félagsins, sem er tekin frá frændum okkar Færeyingum. Því miður man framkvæmdastjórinn ekki alveg hvernig viðurlögin hljómar. Fráfarandi gjaldkeri mun væntanlega setja viðurlögin hér inná athugasemdakerfið.

Gjaldkerinn fyrrverandi var ekki lengi að bjarga málunum eins og sjá má í athugsemdakerfinu hér fyrir neðan, en fyrir þá sem ekki hitta á takkann eða hafa ekki nennu til að smella þá er reglan þannig: Brot við þessi reglan varðar að limur verður strokinn.


Árshátíð Veiðifélagsins

Ársfundur og árshátíð Veiðifélagsins var haldinn um helgina. Vaskir sveinar og Villtar meyjar héldu á Suðurland og eyddu þar saman helginn við leik, söng, mat og drykk. Myndir frá fundinum og árshátíðinni eru væntanlegar á vefinn innan skamms.

Árshátíð Veiðifélagsins
Sviðaveisla í Flóabæli.

Árshátíð 2008
Veisla að Hellishólum.


Árshátíð og aðalfundur

Boðað er til árshátíðar og aðalfundar veiðifélagsins þann 25. október næstkomandi.Gjaldkerinn er búinn að bóka gistingu í uppábúnum rúmum á  Syðra Langholti 24. til 26. okt. fyrir 11 manns.

Við höfum eldhúsið og matsal fyrir okkur og verðum sennilega ein í húsinu - heitur pottur fylgir húsinu!


Veiðisaga

Vinnufélagi framkvæmdastjórans brá sér til veiða í Eystri-Rangá í vikunni. Hann var í 2 daga, þegar vinnufélaginn sneri aftur þá sagði hann frá því að alls hafi veiðst 27 fiskar á þessa einu stöng, þetta voru víst sæmilegir boltar, engir risar en svona 6-12 pund. Sá stærsti var 12 punda sjóbirtingur, feitur og fallegur og einstaklega erfiður viðureignar.  Bæði var veitt á maðk og flugu.

Vinnufélaginn sagði líka frá því að þegar hann ætlaði að koma fiskinum í reyk þá hafi allt verið upppantað (hér eiga að vera þrjú p í röð!!). Hann hafi því brugðið á það ráð að frysta það sem hann gat, af þessum 27 fiskum átti vinnufélaginn 19 en aðeins 12 þeirra fengu pláss í frystikistu kappans svo nú voru góð ráð dýr. Hann ákvað því að aka með þessa 7 laxa sem eftir voru í Reykofninn á Smiðjuveginum og eftir miklar samningaviðræður þá sættist Óli í Reykofninum á að taka við fiskunum. Vinnufélaginn lofaði að koma ekki með meira til hans fyrr en um jól, en þá svaraði Óli: „nei, komdu með þá um miðjan október!“

Ég held að vinnufélaginn hafi ekki áttað sig á því að síðustu vikur fyrir jól er líka fullt að gera hjá Reykofninum!!!


Einn fyrir helgina

Sankti Pétur fékk leyfi frá störfum sínum við Gullna hliðið og Jesús tók vaktina fyrir hann. Þegar hann var að skrá niður þá sem vildu komast inn varð hann var við gamlan mann í röðinni sem honum fannst kunnuglegur. Þegar maðurinn kemur að hliðinu spyr Jesús hann að nafni.

"Jósep" svarar maðurinn og verður Jesús nú heldur betur forvitinn.

"Starf?" spyr Jesús.

"Trésmiður" svarar Jósep og Jesús er orðinn mjög forvitinn svo hann spyr skyndilega.

"áttu lítinn strák?" og Jósep svarar að bragði "já".

"Er hann með göt í úlnliðum og við ökkla?" spyr Jesús og svarið var "Já".

þá lítur Jesús djúpt í augu Jóseps með tár í augum og hrópar "Faðir, faðir!"

Gamli maðurinn virðist hálf gáttaður en eftir smá stund segir hann ...

"Gosi?"

 


Ný skoðanakönnun

Bendi á nýja skoðanakönnun hér til vinstri á síðunni. Ætlar þú á skytterí í haust?

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband