Veiðimenn hér vaskir standa

Til af forðast skammir og ónotalegheit þá sendi ég hér smá frétt af örstuttri veiðiferð sem ég fór með fjölskyldunni vestur í Sauðlauksdal um síðustu helgi.

Við lögðum af stað úr Kópavogi seinni part á föstudag og komum í Kvígindisdal seint um kvöldið.

Í stuttu máli þá voru farnar 2 stuttar veiðiferðir í Sauðlauksdal á laugardeginum í leiðindaveðri roki og rigningu en aflabrögð voru ágæt þó byrjunin hafi ekki lofað góðu eins og sést á meðfylgjandi vísu sem mamma gamla orti þegar við vorum nýbyrjaðir veiðar (hún er frekar óþolinmóð sú gamla)

Vísan er svona.

Veiðimenn hér vaskir standa
En varla nokkra bröndu fá
Fredrik tókst þó bröndu að landa
En frekar var hún agnarsmá.

Höfundur Frúgit Thoroddsen

En til að fyrirbyggja allan misskilning þá bjargaði sá sænski ekki veiðinni heldur voru veiðitölur eftirfarandi:

Snæbjörn fékk 3 fiska, Ólafur Ásgeir 3 og Fredrik einn fisk og eina bröndu.

kv. Snæbjörn formaður


Veiðar utan kvóta - eða án annarra gildra lima

Frést hefur af því að varaformaðurinn, sá sem er annar frá hægri á myndinni hér að ofan, hafi farið í veiði ásamt dóttur sinni í síðustu viku. Óskað er eftir því að hinn gildi limur greini frá niðurstöðum þeirrar ferðar hér á síðunni.

Útilega veiðifélagsins 2008

Veiðifélagið 2008 028Veiðifélagið hélt í frábæra útilegu síðustu helgina í júlí. Eins og við var að búast skemmtu gildir limir, meðlimir þeirra og aflimir sér frábærlega og var sannarlega skemmtilegt í ferðinni. Myndir frá ferðinni hafa verið settar inná ljósmyndavef framkvæmdastjórans.

Ef gildir limir óska eftir því að fá myndirnar sendar í fullri upplausn er þeim óhætt að hafa samband við stjórann sem mun bregðast vel við.

kv. IH


Sjóstöng í Arnarfirði 2007

Framkvæmdastjórinn og tvær eiginkonur gildra lima í Veiðifélaginu héldu í ferðalag í júlímánuði 2007. Þar skelltu þær sér m.a. á sjóstöng í Arnarfirði og þar sem formaðurinn setti inn mynd af ógildum limi í Veiðifélaginu þá er ekki úr vegi að skella inn myndum af veiðiferð þeirra þriggja í Arnarfirði 2007.

Njótið vel:

IH
Framkvæmdastjórinn búinn að setja í einn golþorsk úr Arnarfirði.

BH
Bryndís með einn þorskinn enn á önglinum, minnir um margt á formanninn, sjáið hvernig stöngi svegist við átökin.

SH
Sigrún með einn titt á stönginni, eini fiskurinn sem hún veiddi í ferðinni en hún fékk að landa nokkrum sem bitu á hjá framkvæmdastjóranum.


Túnfiskveiðar við Roatan, Honduras

  

Í síðustu færslu framkvæmdastjórans kemur fram að tveir meðlimir veiðifélagsins hyggðu á reisu til Karabíska hafsins.  Tilefni og tilgangur þessarar ferðar var margþættur og verður ekki rakinn hér en að sjálfsögðu var tækifærið notað og rennt fyrir fisk.  Á Roatan, lítilli eyju utan við Honduras, var leigður bátur og haldið til veiða.  Á myndinni er fyrsta fiskinum hampað af Þorsteini Einarssyni - þaulvönum sjóstangaveiðimanni en ekki enn félagsmanni í veiðifélaginu. 

Annars eru félagar eru minntir á að ákveðin hefur verið veiðiferð helgina 25. - 27. júlí.  Nánari frétta er að vænta næstu daga.

Formaðurinn


Veiðiferð til Karabíska hafsins

Fréttir hafa borist af því að tveir gildir limir Veiðifélagsins ásamt mökum sínum hafi hist í gærkvöldi. Það var þó ekki til að drekkja sorgum yfir sigri Júnæted á Tjesí heldur til þess að skipuleggja veiðiferð um Karabíska hafið. Hluti ferðarinnar mun þó verða um sunnanverða heimsálfuna Norður Ameríku þar sem félagarnir ætla að munda vopn sín og koma kúlum í holur. Að því loknu ætla þeir að taka sér far með dalli sem siglir um hið karabíska haf og sjálfsagt munu þeir hafa sjóstöngina með í för til að hafa í sig og á.

Óskar framkvæmdastjórinn þeim góðrar ferðar og hlakkar til að heyra veiðisögur þeirra þegar heim verður komið.


Eða kannski ekki neitt

Framkvæmdastjórinn lýsir því hér með yfir að hann (hún) sé ósátt við að veiðifélagslimir skuli ekki lesa þessa síðu. Spurt er hér til hliðar hvort þú ætlir að veiða á flugu í sumar. Sjö hafa svarað spurningunni þar af hefur henni verið svarað þrisvar sinnum af framkvæmdastjóranum sjálfum. Framkvæmdastjóranum er þar fyrir utan kunnugt um 2 til viðbótar sem ekki eru í veiðifélaginu en hafa svarað spurningunni - sem síðan leiðir til þess að kannski hafi 2 gildir limir í Veiðifélaginu svarað spurningunni. Það er þó ekki víst.

Veiðifélagar eru beðnir um að svara spurningunni og setja síðan inn athugasemd við þessa frétt þar sem þeir kvitta fyrir svarinu - það þarf þó ekki að fylgja með hvort þeir svöruðu já eða nei! Koma svo drengir ... Devil


Allt að gerast!

Nú ættu allir veiðimenn að vera búnir að gera klárt fyrir veiðitímabilið. Búið að fara yfir línuna, flugurnar, spúnana og rífa stærstu önglana úr rassinum! Veiðifélagar... formaður og þið hinir, hvenær ætlið þið að boða til fundar?

Framkvæmdastjórinn!


mbl.is Veitt í Reynisvatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Presley syngur fyrir Snæbjörn

Snæbjörn kæri,
Snæi “sweet”,
Þú ert orðinn stór.
Grátt í vöngum, lítið “beat”
og ekkert voða mjór

Snæbjörn kæri,
Ein er sú
Sigga þér við hlið
Átti með þér börn og bú
Og eldaði oft svið.

Snæbjörn kæri,
Ólafsson
Brátt þú getur hætt
Að stunda vinnu lon og don
Og barnabarna gætt

Snæbjörn kæri,
Snæi „dear“
Bíddu bara um sinn
Því að núna styttast fer
Í ellilífeyrinn.


Frábært afmæli hjá Snæbirni og sannarlega óvæntir gestir

Afmælið hjá Snæbirni í gær var í einu orði sagt frábært! Afmælisbarnið fékk heldur fábreyttar gjafir en margar þó því takmark hans um að safna fyrir brunni í Afríku tókst með virktum og gott ef hann safnaði ekki líka fyrir einni geit og fjórum hænum! Óskar Veiðifélagið Snæbirni hér með til hamingju með það að bjarga lífi margra barna í Afríku.

Þorvaldur og Þórir, gildir limir í Veiðifélaginu (sem ég frétti í gær að héti Vaskir sveinar), héldu afbragðs góðar ræður afmælisbarninu til heiðurs og til samans hrópuðu veislugestir fjórfallt hirra og þrefallt húrra fyrir gestgjafanum.

Margir góðir gestir komu í veisluna, þar á meðal Elvis Presley, Freddie Mercury og Marilyn Monroe sem komu fyrir tilstilli hinnar dulmögnuðu Dollýjar Dulrænu.  Í fylgd með henni var ótrúlega heitur lífvörður sem gætti þess með sóma að enginn næði augnsambandi við dívuna, enda mun það vera stórhættulegur leikur!

Presley, Mercury og Monroe sungu öll til heiðurs afmælisbarninu og má segja að enginn ENGINN íslenskur auðjöfur geti toppað þetta afmæli, a.m.k. ekki á þessari öld.

afmælið hans snæbjarnar 028
Snæbjörn og systkini hans fimm, Siggi, Þröstur, Guðný, Snæbjörn, Kalli og Lalli.

afmælið hans snæbjarnar 020
Freddie Mercury

afmælið hans snæbjarnar 024
Elvis Presley

afmælið hans snæbjarnar 027
Marilyn Monroe

afmælið hans snæbjarnar 021
Dollý dulræna tók sveiflu við afmælisbarnið undir vökulu auga lífvararins.

 

 


Snæi safnar fyrir brunni

Framkvæmdastjórinn fékk á dögunum boðskort frá Snæbirni Þór Ólafssyni um að hann ætti sér draum um að byggja brunn. Flestir Íslendingar eru aldir upp við það að birgja brunna en Snæbjörn ætla sér aðra og stærri hluti og vill safna fyrir brunni í Afríku, af öllum stöðum!

Framkvæmdastjórann rennir í grun hvaða tilgangi þetta þjónar hjá Snæbirni, enda segir hann í bréfinu að hann ætli að halda uppá 50 ára afmælið sitt í leiðinni og þar sem hann á allt þá vill hann safna fyrir brunni. Framkvæmdastjórinn er að velta því fyrir sér að senda honum lok á brunninn, svo litlu afrísku börnin detti ekki ofaní brunninn sem Sæbjörn ætlar að grafa, eða einhver annar fyrir hann.

Annars var framkvæmdastjórinn að velta því fyrir sér hvað verður til þess að Snæbjörn tekur uppá þessu, annað en það sem hann segir í bréfinu um að honum hafi gengið allt í haginn og hann eigi allt sem hann þurfi, og hefur framkvæmdastjórinn komist að þeirri niðurstöðu að Snæbjörn ætli að leggjast í ferðalög. Ætli hann sjái það ekki í hillingum að geta veitt meira í Afríku en á Íslandi!

Annars er Snæbjörn ekki aðeins að ná þeim áfanga að komast á sextugsaldurinn heldur náði hann þeim áfanga um daginn að verða afi, og færir framkvæmdastjórinn honum bestu óskir í tilefni af því með kærri kveðju frá öðrum gildum limum í Veiðifélaginu.

Enda á sömu nótum og afinn ... "Blóm og kransar afþakkaðir!"

Framkvæmdastjórinn


Hugmynd frá kokkinum

Kokkurinn frá Skógum, Þórir Gíslason, hefur kastað fram þeirri hugmynd í eyru framkvæmdastjórans að Veiðifélagið fari í ferð til Akureyrar í kringum páska!  Spurt er hvernig öðrum limum félagsins lítist á þá hugmynd?

Ekki láta pólitíkina eyðileggja fyrir ykkur veiðitímabilið

Eftir að hafa hlustað endalaust á rugl úr borgarstjórninni þá er barasta tími til að fara aðeins að skoða hvað hægt er að veiða um þessar mundir. Samkvæmt upplýsingum á Veiðivefnum þá má veiða svartbak, sílamáf og silfurmáf allt árið, aðrir fuglar eru innan ákveðins veiðitímabils.

Svo skemmtilega vill til að nú um stundir er heimilt að veiða flesta algengustu fugla að rjúpu og blesgæs undanskilinni.

bles 

Þekkja má blesgæs á því að hún hefur bleikrautt nef, svartar þverflikrur á kviði, rauðgulir fætur, hvít blesa. Að gefnu tilefni er bent á að blesgæsin var friðuð með reglugerð þann 12. júní 2006.


Ekki drepa flugur í annarra manna húsum!

Kæru veiðifélagslimir gleðilegt nýtt veiðiár.

Það er ekki amalegt að gildir limir Veiðifélagsins skuli allir vera við hestaheilsu þegar það ágæta ár 2008 heilsar. Það er einlæg ósk framkvæmdastjórans að það ár verði heilladrjúgt fyrir meðlimi Veiðifélagsins sem og Íslendinga alla og að ættjörðin verði vel fóstruð af forseta vorum og ríkisstjórn.

Framkvæmdastjórinn vill þó minna á orð Nóbelsskáldsins er amma gamla í Brekkukoti, kona Björns bónda, segir við Álfgrím: „Eitt er það sem maður má aldrei gera skepnan mín, því það er ljótt ... að drepa flugur í annarra manna húsum."

Það sama vil ég biðja meðlimi Veiðifélagsins um að hafa í huga á því herrans ári 2008, ekki drepa flugur í annarra manna húsum, ekki skjóta fugla í annarra manna landi og ekki veiða fiska í annarra manna ám ... tja, nema hafa til þess leyfi!


Jóla"veiði"saga

Þá líður óðum að því að jólahátíðin gangi í garð. Þegar þetta er ritað er klukkan rétt að verða fimm og aðeins klukkutími þar til kirkjuklukkur hringja jólin inn. Af því tilefni langaði mig til að deila með ykkur lítilli jóla"veiði"sögu sem tengist flestum þeim sem í Veiðifélaginu eru á einn eða annan hátt.

Þannig er að afi minn, Sigga, Snæbjörns og Þrastar og tengdaafi Konráðs og Þóris (sem sagt maður sem kemur Þorvaldi ekkert við) og amma, Lárus Kirstinn Hinriksson og Guðný Sigríður Hjálmarsdóttir bjuggu á Akureyri um nokkurt skeið en afi er ættaður frá Reiðarfirði og amma frá Húsavík. Þau bjuggu sem sagt um hríð á Akureyri og þar var afi bifreiðastjóri og amma verkakona.

Amma sagði mér eitt sinn frá því að þau hefði haldið gæsir við heimili sitt og á hverju ári valdi amma tvær gæsir sem hún aldi sérstaklega til slátrunar á jólum. Hún þurfti þó aðeins eina gæs fyrir sig og sitt fólk, en ævinlega aldi hún aðra gæs því hún vissi að þegar nær dró jólum kom einhver og stal af henni gæs til að hafa á sínu jólaborði. Aðspurð sagðist hún vita hvaða maður það var sem nappaði gæsinni ár hvert en sá átti tæplega til hnífs og skeiðar fyrir sig og sína og bjó í næsta nágrenni við þau. Amma sagðist aldrei hafa séð eftir gæsinni ofaní umrædda fjölskyldu en hún hefði gjarnan viljað gefa hana um hver jól. Hins vegar var húsbóndinn á því heimili of stoltur til þess að fara að beiðast matar og því hafi þau amma haft þegjandi samkomulag um að hún aldi gæsina fyrir hann og átti síðan von á því að henni yrði stolið í aðdraganda jólanna.

Þessi saga er mér afar kær og mér verður oft hugsað til ömmu þegar ég fæ jólaöndina um hver jól. Mér var þó sérstaklega hugsað til hennar nú um þessi jól því við Sigrún systir mín (eiginkona Þóris) vitjuðum leiðis þeirra afa og ömmu í morgun í Fossvogskirkjugarði. Það var ósköp notaleg stund þarna við leiðið þeirra og Valgeirs litla og mátti ég til að blikka til afa þegar ég gerði krossmark við leiðið hans og brosa blítt til ömmu. 

Enn og aftur gleðileg jól kæru Veiðifélagar. Farið varlega um jólin og njótið samvistanna við fjölskyldur ykkar.  GLEÐILEG JÓL!

Framkvæmdastjórinn


Jólakveðja

Veiðifélagið sendir meðlimum sínum, bloggvinum og fjölskyldum sínar bestu jólaóskir með von um friðsæl jól og farsælt komandi veiðiár.


Veiðisaga

Ég fór að hugsa um það hvort það væri ekki við hæfi að setja hér inn einhverja hugljúfa jólasögu. Komst að því að það væri ómögulegt enda er fátt jólalegt við veiðifélag, nema ef vera skyldi jólamaturinn sem víða er á borðum veiðimanna ... rjúpan!

Frumlegheitin voru alveg að fara með mig svo ég "gúgglaði" orðið veiðisaga og hitti á þessa líka fínu sögu hjá bloggara sem kallar sig Dreza, en hann heitir víst Andrés Skúlason og er að öllum líkindum frá Djúpavogi. A.m.k. segir hann í upphafi sögunnar að hann hafi farið í sund "hér á Djúpavogi".

Sagan er eins og ég hef áður sagt fjári góð. Ég gríp niður í hana: "En hvað um það bílstjórinn afréð engu að síður að kíkja í brekkurnar þarna á svæðinu og viti menn, allt í einu sér hann rjúpu bregða fyrir og það fleiri en einni, hann rífur því hólkinn eldsnöggt upp og hleypir af og svo ótrúlegt sem það nú er,  þá lágu heilar sjö rjúpur þarna í fyrsta skotinu.

Þú getur lesið söguna alla á vefsíðu dreza: http://drezi.blog.is/blog/andres_s/entry/378961/

GLEÐILEG JÓL!


Veiðifélagið kætist í ótíðinni

Veiðifélagið kætist óneitanlega í ótíðinni. Nú er tíminn til að vera inni og dytta að hinu og þessu, nú eða undirbúa stórafmæli sem verður snemma næsta ár. Heyrst hefur að undirbúningurinn hafi allt að því farið úr böndunum og að búið sé að bóka einhverja fræga tónlistarmenn í veisluna.

Það er ekki eins og gildir limir veiðifélagsins hafi verið að veiða sér til matar undanfarið, hvað þá heldur til svartrar sölu. Ekki einu sinni hafa menn dregist á fjöll til að leita rjúpna eða gæsar. Makalaus leti hefur blasað við veiðimönnum og jafnvel hafa einhverjir lagst niður við kvótasölu bara til þess að geta sagt að þeir hafi verið í fiski!  Ótrúleg frammistaða og meira að segja drykkja veiðifélagslima hefur dregist saman um 16,7% (sem er áfengismagnið í lélegu brasilísku púrtvíni).

Framundan er stórhátíð og hyggja veiðifélagslimir sér gott til glóðarinnar í mat og drykk, þó líklega verði villibráð ekki á borðum að þessu sinni.


Heilsteikt villigæs

Eftirfarandi uppskrift að heilsteiktri villigæs fannst fyrir tilviljun á vef Vopnafjarðar, www.vopnafjordur.is. Henni var snarlega stolið og stungið hingað inn.

Margir veiðimenn hafa lent í þeim hremmingum að heilsteikja jólagæsina og bera á borð eða bjóða gestum í mat fullir stolts yfir bráð síðasta veiðitímabils en hafa síðan lent í ólseigum fugli.
Þá hefur ánægjan yfir annars gómsætri villibráð fokið út í veður og vind. Margir kenna því þá um að fuglinn sé of gamall, en þótt aldur hans eigi oft hluta til af sökinni er hann ekki endilega eina ástæðan.
Matreiðsluaðferðin er oftar en ekki þar sem gerir fuglinn seigan. Of hár ofnhiti og of stuttur steikingartími valda því að kjötið þornar of mikið og sinar, t.d. í lærum, skreppa saman og stífna.
Við lægri hita og lengri steikingartíma ná þessar sinar að meyrna og til að koma í veg fyrir þornun má gufusteikja fuglinn og núa haminn með sykri en það kemur í veg fyrir uppgufun úr kjötinu.
Hér á eftir fylgir uppskrift að heilsteiktri gæs upp á gamla mátann.

1 stk. gæs, reytt og sviðin
1 gulrót
2 sellerístönglar
1/2 laukur
5 einiber
1 láviðarlauf
1 stk. rósmarín
2 stk. blóðberg (má nota timian)
1 glas vatn
salt, pipar, sykur

Blandið saman salti, pipar og sykri og núið því í haminn á gæsinni, sem þið setjið síðan í steikingarpott. Þegar gæsin er elduð bráðnar sykurinn og myndar hjúp á hamnum sem varnar uppgufun og kemur í veg fyrir að kjötið þorni.
Grófsaxið gulrótin, selleríið og laukinn og látið það í steikingarpottinn ásamt einiberjunum, láviðarlaufinu, blóðberginu og rósmaríninu.
Hellið því næst vatninu út í og setjið lokið yfir. Steikið við 110° til 115° hita í u.þ.b. 3 tíma. Síðustu 10 mín. er hitinn hækkaður í 180° og lokið tekið af.
Soðið af fuglinum er síðan notað í sósu, sem er þykkt og krydduð eftir smekk hvers og eins. T.d. má bæta í hana gráðosti, rifberjahlaupi, portvíni eða rjóma.

Fleiri uppskriftir eru á: http://www.vopnafjordur.is/index.php?option=com_loudmouth&Itemid=78&task=topic&id=32


Á Rauðasandi

Þetta er baðströnd fyrir alla
sem trúa því að veröldin
eigi sér enn málsbætur

Á grasinu upp af sandinum
liggja kýrnar í makindum
og jórtra. Hitinn er 22°C
í forsælu. Móðan titrar
yfir byggakrinum og öxin
glóa í sólinni. Það er
hvítalogn

Hlaðan er líkust því að hafa verið
flutt í heilu lagi úr einhverjum
amerískum afkima (þar sem fólk
man varla hvað forsetinn heitir)

Við vöðum lænurnar neðan
við graslendið og göngum út
á logabjart flæmið niður að
sjónum

Öll orð eru horfin
við bara horfum

Gyrðir Elíasson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband